LOKA
FÁÐU TILBOÐ Í BÓKAÐ

Bylting fyrir smærri
fyrirtæki og einyrkja

Með KPMG Bókað losnar þú við umstang og áhyggjur af bókhaldinu. Í staðinn færðu þinn eigin bókara, öflugt yfirlit yfir reksturinn frá degi til dags og meiri tíma til að sinna starfseminni.

HORFA Á MYNDBAND

Hvað er Bókað?

Þinn eigin bókari

Frá fyrsta degi sér einn og sami tengiliður um bókhaldið þitt, kynnist þér og rekstrinum og skilur út á hvað hann gengur.

Þú sérð stöðuna á
bókhaldinu dag frá degi

Með aðgangi að nýjustu rekstrarupplýsingum, yfirlitum og uppgjörum í skýinu getur þú skoðað þær hvenær sem er og þannig gert raunhæfari áætlanir.

Við sjáum um uppgjör
og skattaskýrslur

Meðan við sjáum um umstangið hefur þú meiri tíma til að sinna því sem mestu máli skiptir: Daglegum rekstri og starfsemi fyrirtækisins.

Við höfum áratuga reynslu
sem nýtist þér

KPMG er eitt elsta og virtasta enduskoðunarfyrirtæki heims. Reynsla og þekking starfsfólksins nýtist öllum viðskiptavinum okkar.

Gerðu þína eigin reikninga

Reikningagerð verður leikur einn og þú getur útbúið eigin sölureikninga rafrænt eða á pappír og tengt við innheimtu í bankanum þínum.

Láttu okkur sjá um launavinnsluna

Bókarinn getur séð um launaútreikning og skattskil sé þess óskað og sparað þannig dýrmætan tíma.

Umsagnir viðskiptavina

Þorkell

LITALAUSNIR
„Samskiptin við bókarann eru mjög góð, ég get fengið að vita stöðuna hvenær sem er og svo er frábært að vera laus við pappírsvesenið.“

Umsagnir viðskiptavina

Eyrún

RÓRÓ
„Ég er mjög ánægð með þjónustuna sem að við höfum fengið frá KPMG. Það hefur verið mikill kostur fyrir okkur að geta sótt fjölbreytta, hágæða þjónustu frá færum sérfræðingum, á einum og sama staðnum.“

Hvað kostar að vera í Bókað?

Kostnaðurinn fer eftir umfangi og þjónustuþörf og er eins misjafn og fyrirtækin eru mörg. Við gefum þér fast tilboð miðað við þínar forsendur og þá verður kostnaðurinn fyrirsjáanlegur og líklega lægri en þú hefur gert þér í hugarlund.

Vertu í skýjunum með bókhaldið

Þú sendir okkur skjölin
Við sjáum um bókhaldið
Þú færð yfirsýn

Þú þarft ekki að setja þig inn í flókin bókhaldskerfi. Þú einfaldlega sendir okkur gögnin rafrænt og við sjáum um afganginn. Í skýþjónustunni hefur þú síðan aðgang að öllum nýjustu rekstrarupplýsingum, yfirlitum og uppgjörum allan sólarhringinn, alla daga ársins, hvar sem er.

Fáðu nánari upplýsingar

Láttu okkur vita hvað fyrirtækið þitt eða félagið heitir og sendu okkur símanúmerið þitt ef þú óskar eftir símtali.

Sendu okkur fyrirspurn á bokad@kpmg.is

Ertu mennsk/ur?

Hvað er tveir plús þrír?

Takk fyrir! Fyrirspurn hefur verið móttekin.

Oops! Something went wrong while submitting the form